Fugladekur
Te - Eternal Feathers
Te - Eternal Feathers
Couldn't load pickup availability
Eternar feathers 25gr.
Teblanda úr steinefnaríkum laufum og blómum sem auka heilsu fuglsins þíns bæði líkamlega og andlega.
Kamillu blóm er þekkt fyrir að hafa róandi áhrif og er einnig bólgueyðandi. Morgunfrúin er frábær fyrir húðina og getur verið frábær viðbót fyrir næringarríkt mataræði.
Innihald: Kamilla, Morgunfrú, Roobios lauf, Lavender blóm og engifer rót.
Aðferð:
* Hitið vatn rétt undir suðumarki. Passið að vatnið sé á milli 70°og 80°C
* Mælið 1,5tsk af te í hverja 300ml af heitu vatni og setjið í tepoka/sigti.
* Setjið tepokann/sigtið í teketil eða bolla og hellið vatninu yfir. Gætið þess að allt te se undir vatni og látið standa í 3-5mín.
* Þegar sá tími er liðinn fjarlægið tepokann/sigtið. Leifið teblöndunni að kólna að stofuhita áður en fuglinum er gefið. Notið minna eða meira vatn eftir smekk fuglsins.
Önnur aðferð:
Einnig má gera kalt te. Þá er te sett í kalt vatn og látið standa í 6-12 klst í kæli. Hægt er að fjarlægja laufin og blómin, eða hafa þau með í þegar fuglinum er gefið te.
Einnig má setja þessa blöndu þurra út á fóðrið til að bæta fjölbreitni og næringu í fæðu..
Tilbúið te verður að geyma í kæli ef ekki drukkið og geymist í allt að tvo daga. Til að tryggja að teið skemmist ekki er ráðlagt að fjarlægja það úr búri fuglsins eftir fjóra klst.
Gefist einusinni á dag.
*Þessi vara er ekki ætluð sem lyfjameðferð eða í lækningarskyni, eða fyrir fólk til að innbyrgða. Te kemur ekki í staðin fyrir vatn.*
Share

